Bygg­ing­ar­leyfi á Ís­landi - allt á ein­um stað

Bygg­ing­ar­leyfi á Ís­landi - allt á ein­um stað

HMS boðar til opins fundar um innleiðingu stafrænna byggingarleyfa. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 9. apríl í húsakynnum HMS í Borgartúni 21 og hefst kl. 11:30. Léttar veitingar verða í boði.

Á fundinum verður fjallað um þróun og innleiðingu á útgáfu 1 fyrir umsóknir um byggingarleyfi sem ætlað er að stuðla að samræmdri afgreiðslu byggingarleyfa. Stafræn byggingarleyfi eru stórt skref í átt að bættri skráningu, skilvirkari afgreiðslu við leyfisveitingu og  birtingu rauntímaupplýsinga um mannvirkjagerð á Íslandi.

Dag­skrá

  • Innleiðing stafrænna byggingarleyfa
    Dagný Geirdal, sérfræðingur í teymi mannvirkjaskrár HMS
  • Lífsferilsgreiningar í byggingarreglugerð
    Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá HMS

Fundarstjóri: Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri sviðs mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS